
Þjónustusamningur milli Hvalsnessóknar og KFUM og K Þann 28. janúar sl. var undirritaður samningur milli Hvalsnessóknar og KFUM og K um unglingastarf í sókninni. Fór það af stað sl. mánudagskvöld. Fundir verða á mánudagskvöldum kl. 20.00-22.00.
Unglingadeildin er opin unglingum í 8.-10. bekk. Á fundunum fléttast saman leikur, skemmtun, trúarpælingar ofl. Síðustu helgina í febrúar verður farið í Vatnaskóg á Unglingalandsmót KFUM og K.
Til að komast með þarf að mæta á þrjá fundi fyrir mót. Á sama tíma var undirritaður samningur við Útskálasókn. Töluverð hefð er fyrir KFUM og K starfi á suðurnesjum og má nefna að í Grindavík og Keflavík eru einnig starfandi unglingadeildir KFUM og K í samstarfi við kirkjurnar.